154. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2024.

almenn hegningarlög.

131. mál
[18:26]
Horfa

Flm. (Gísli Rafn Ólafsson) (P):

Virðulegi forseti. Hvenær drepur maður mann og hvenær drepur maður ekki mann, spurði Jón Hreggviðsson eftirminnilega í skáldsögunni Íslandsklukkunni. Svarið við þessari spurningu má reyndar finna kirfilega skilgreint í XXIII. kafla hegningarlaga. Ef Laxness hefði hins vegar fjallað um XXII. kafla hegningarlaga, sem hann gerir reyndar í öðrum verkum á borð við Sjálfstætt fólk, myndi spurningin sennilega hljóða einhvern veginn svona: Hvenær hefur maður samræði við barn og hvenær hefur maður ekki samræði við barn? En einmitt þessi spurning er meginviðfangsefni frumvarpsins sem ég kynni fyrir ykkur í dag.

1. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem Alþingi lögfesti 20. febrúar 2013, hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Í samningi þessum merkir barn hvern þann einstakling sem ekki hefur náð 18 ára aldri, nema hann nái fyrr lögræðisaldri samkvæmt lögum þeim sem hann lýtur.“

Í 1. gr. laga um lögræði, sem upphaflega voru samþykkt sem lög frá Alþingi í maí 1997 og síðast breytt í júní á síðasta ári, stendur, með leyfi forseta:

„Lögráða verða menn 18 ára. Lögráða maður er sjálfráða og fjárráða.“

Ljóst er að lagaleg skilgreining hugtaksins barns er því afar skýr. Ef þú ert 17 ára eða yngri ertu barn í augum laganna.

Fjallað hefur verið um kynferðisbrot gegn börnum í hegningarlögum í gegnum tíðina. Til að mynda segir í hegningarlögum þeim er Kristján IX. samþykkti til handa Íslendingum árið 1869 að kynferðisbrot gagnvart börnum séu skilgreind sem kynferðismök við 12 ára eða yngri. Við gagngera endurskoðun hegningarlaganna árið 1940 var sá aldur svo hækkaður í 14 ár nema þegar um aðila af sama kyni var að ræða. Þá voru 18 ár talin heppilegri. Í greinargerð með lögunum árið 1940 voru ekki gefnar neinar sérstakar ástæður fyrir því að hækka aldurinn en gera má ráð fyrir að hækkunin endurspegli breytt siðferðismat á þeim rúmlega 70 árum sem liðu á milli þessara útgáfna laganna.

Frá árinu 1940 liðu svo aftur um sjö áratugir þar til kynferðisbrotakafli almennra hegningarlaga var tekinn til heildrænnar endurskoðunar og árið 2007 voru gerðar breytingar til hins betra frá því sem áður var með lögum nr. 61/2007. Þá var kynferðislegur lögaldur hækkaður úr 14 árum í 15 ár. Í greinargerð þess frumvarps segir að íslensk börn byrji mörg að stunda kynlíf í kringum 15 ára aldur og því sé varhugavert að hækka aldurinn enn frekar til að öruggt sé að tveir einstaklingar á svipuðum aldri sem eigi í kynferðislegu sambandi fyrir lögaldursmörkin sæti ekki refsingu fyrir, einkum með tilliti til þess ef foreldrum annars þeirra er illa við ráðahaginn. Á þeim tíma virðist ekki hafa verið tekið tillit til þess að þegar hafi ákveðinn varnagli verið sleginn í þessu samhengi með hinu svokallaða Rómeó og Júlíu-ákvæði en í því felst að samræði milli einstaklinga undir 15 ára aldri sé ekki refsivert þegar málsaðilar eru á svipuðum aldri. Miðað við röksemdafærslurnar sem finna má í greinargerð með lögum nr. 61/2007 mætti ætla að það gæti orðið viðvarandi vandamál að foreldrar barna yngri en 15 ára kærðu kynferðislegt samneyti þeirra við eldri einstakling þrátt fyrir að hann kynni að vera aðeins nokkrum árum eldri. Hins vegar hafa engir slíkir dómar fallið hérlendis þrátt fyrir að rannsóknir hafi sýnt að allt að 20% unglinga undir 15 ára aldri hafi byrjað að stunda kynlíf fyrir lögaldur. Það er því kannski lítil ástæða til að hafa áhyggjur af þessum tiltekna vinkli málsins.

Aftur á móti hefur komið í ljós í gegnum umræðu undanfarinna ára og með tilkomu magnaðra fjöldahreyfinga á við metoo-byltinguna, sem hefur skekið samfélagið allt, að áherslan hefði kannski átt að vera annars staðar. Á undanförnum árum hefur nefnilega borist ákall frá samfélaginu um að ganga lengra til að tryggja réttarvernd barna gagnvart kynferðislegri misnotkun af hálfu fullorðinna einstaklinga. Þá hefur einkum verið í umræðunni hversu skammt sú réttarvernd sem ætluð er 15–17 ára börnum nær. Til að mynda virðist vera gert ráð fyrir því í núgildandi lögum að börn 15 ára og eldri séu nægilega þroskuð og reynd til að réttlætanlegt sé að veita þeim sjálfsákvörðunarrétt til að stunda kynferðismök með fullorðnum einstaklingum, að því gefnu að fjölskyldu- og forræðistengsl séu ekki á milli þeirra. Einnig er vert að hafa í huga að yfir 61% af brotaþolum kynferðisbrota, samkvæmt tölfræði frá ríkislögreglustjóra, er undir 18 ára aldri. Það sem er virkilega varhugavert hér er að ekkert aldursviðmið hafi verið sett upp á við fyrir þetta sjálfsákvörðunarráðrúm barnsins. Það má færa fyrir því rök að þar með leggi löggjafinn blessun sína yfir kynferðislegt samband á við það sem stóð á milli 15 ára barns og 59 ára einstaklings og reynt var á fyrir íslenskum dómstólum.

Þá eru einnig til svokölluð tælingarákvæði sem eiga að veita börnum á aldrinum 15–17 ára ákveðna vernd að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Við beitingu laganna hefur þó reynst óljóst hvað fellur nákvæmlega undir trúnaðarsamband milli fullorðins einstaklings og barns, sem oft leiðir til þess að meintur gerandi er sýknaður. Þetta sýna t.d. nýlegir dómar þar sem umsjónarmaður í sumarbúðum var ekki talinn falla undir þessi viðmið.

Börnum á aldrinum 15–17 ára er þó vissulega veitt vernd upp að ákveðnu marki gagnvart kynferðislegu samneyti við fullorðna einstaklinga, að því gefnu að gerandinn hafi beitt blekkingum, gjöfum eða á annan hátt tælt barn til samræðis eða annarra kynferðismaka. Það hefur hins vegar reynst þrautin þyngri að sannreyna slíkt fyrir dómstólum. Dómstólar hafa t.d. virt það til sýknu ef brotaþoli hafði samband við geranda að fyrra bragði. Í þeim tilvikum þar sem hefur verið sakfellt hefur þurft mikið til, svo sem gríðarlegan aðstöðu- eða þroskamun, langvarandi tímabil og þess háttar. Þetta bendir til þess að skilyrðin séu of þröng.

Síðan hegningarlögin voru síðast endurskoðuð eru liðin 15 ár. Á þeim tíma hefur orðið mikil vitundarvakning í samfélaginu þegar kemur að kynferðisbrotum og kynferðislegri misnotkun og ýmis mál hafa dúkkað upp undanfarið sem var jafnvel ekki vitneskja um að ættu sér yfir höfuð stað árið 2007. Sem dæmi má nefna þau tilfelli þar sem fullorðinn einstaklingur byggir upp trúnaðar- og tilfinningasamband við barn svo að hann eigi auðveldara með að hafa aðgang að því til að misnota það kynferðislega; nokkuð sem, með leyfi forseta, er á ensku kallað „grooming“. Hugtakið „grooming“, sem enn á eftir að íslenska af kostgæfni, er víðtækara en tælingarákvæði íslensku laganna í 3. mgr. 202. gr. og mun víðtækara en það trúnaðarsamband sem kveðið er á um í 1. mgr. 201. gr. hegningarlaga. Það er eftir sem áður mjög alvarlegt fyrirbæri og töluvert algengara en flest okkar gera sér grein fyrir, sér í lagi með tilkomu samskipta í gegnum internetið. Oft er sambandið með þeim hætti að fullorðni einstaklingurinn byggir upp þetta trúnaðartraust og samband við barn meðan það er yngra en 18 ára en sambandið er síðan opinberað þegar barnið verður lögráða. Í ljósi þess hve auðginnt börn geta verið, þar sem þau búa ekki yfir reynsluheimi fullorðinna, er full ástæða til að taka þessi mál fastari tökum. Í dag er nánast algert lagalegt tómarúm þegar kemur að þessum tilfellum. Með því að hækka kynferðislegan lögaldur í 18 ár má grípa þessi tilvik og tryggja börnum á aldrinum 15–17 ára þá vernd sem löggjafanum ber að gera.

Í frumvarpi þessu er þó ekki lagt til að fella brott hið svokallaða Rómeó og Júlíu-ákvæði í 2. málslið 1. mgr. 202. gr. sem tryggir að einstaklingar á svipuðum aldri undir 18 ára sem eiga í samþykku kynferðissambandi á jafnræðisgrundvelli verði ekki sóttir til saka. Skoða má í meðförum þingsins hvort styrkja þurfi þessa málsgrein eða skýra hana betur út við hækkun kynferðislegs lögaldurs.

Þetta er í annað sinn sem þetta frumvarp er lagt fram og í þeirri útgáfu frumvarpsins sem lögð var fram á síðasta löggjafarþingi voru lagðar til stórfelldar breytingar á 200. og 201., 202. og 204. gr. laganna. Í þeirri útgáfu sem nú er lögð fram hefur verið tekið tillit til þeirra umsagna sem töldu þær breytingar ganga of langt og í staðinn aðeins hækkað aldursviðmið í 201. og 202. gr. hegningarlaga.

Mikilvægt er að hafa í huga þegar um er að ræða kynferðismök milli barns á aldrinum 15, 16 og 17 ára og aðila sem er fullorðinn og jafnvel miklu eldri, að þessi mál fara ekki til dómstóla nema eitthvert annað brot eigi sér stað á sama tíma. Ákæruvaldið mun því aldrei sækja mál sem það veit að heyrir ekki undir nein ákvæði. Þess vegna eru það nánast bara þau mál þar sem hefur verið meira ofbeldi og misnotkun í gangi sem rata til dómstóla. Því er engin traust tölfræði sem liggur fyrir um hversu algengt þetta er. En af samtölum mínum við þolendur að dæma, sér í lagi þeim sem ég hef átt við ungar konur, er ljóst að flest fólk er þegar meðvitað eða við það að vakna til vitundar um hversu algengt þetta er og hvað þetta viðgengst víða í samfélaginu. Það er von okkar flutningsmanna þessa frumvarps að með því að einfalda og treysta kynferðisbrotakaflann með þessum hætti verði hægt að girða fyrir þær glufur sem núverandi löggjöf býður upp á fyrir gerendur, með hagsmuni og vernd barna að leiðarljósi.